Opnunartímar
Veitingahúsið er opið fyrir kvöldverð. Eldhús tekur við pöntunum frá kl. 18-20:00 sunnudaga til fimmtudaga og til 20:30 föstudaga og laugardaga
Almennur opnunartími er frá 15. maí til 31. október – sem er háönn. Eldhús er opið fyrir kvöldverð frá 18 til 20:30 sunnudaga – fimmtudaga og til 21:00 föstudaga og laugardaga.
Eftir 1. nóvember er eingöngu opið fyrir forpantanir gerðar minnst degi fyrir pöntunardag. Einnig er í boði pizza pöntunarþjónusta. Gestir geta pantað pizzu fyrir kl. 6 og sótt milli 7 og 8 til að snæða í eldhúsaðstöðunni
Pantanir: info@fossatun.is
Kvöldmatseðill – Hópkvöldmatseðill – Morgunverðarhlaðborð – Drykkjaseðill – Hóphádegismatseðill
Ef gestir óska eftir að bóka borð fyrir fleiri en 7 persónur miðast matarpöntun við þrjá gerðir af réttum og að pöntun á mat sé gerð ekki síðar en að morgni bókunardags. Hópmatseðill gildir fyrir 20+ gesti.
Veitingaaðstaðan okkar er staður til að slaka á og njóta nálægðar náttúrunnar og útsýnisins og hlusta á tónlist. Gestir geta valið plötu úr vinyl safninu, sem inniheldur meira en 3.000 plötur og 5000 geisladiska. Starfsfólk okkar mun með glöðu geði spila plöturnar í heilu en ekki einstök óskalög.
Vinylplötu- og geislasafnið er í eigu Steinars Berg, gestgjafa Fossatúns, en lífshlaup hans hefur alltaf verið tengt tónlist. Hann starfaði í íslensku tónlistarlífi í 30 ár og átti Steina hf. leiðandi tónlistarfyrirtæki á Íslandi og gaf út tónlist með mörgum besta, skemmtilegasta og áhugaverðasta tónlistarfólki íslandssögunnar. Einstök staðsetning veitingahússins býður upp á náttúrunálægð og útsýni sem á sér ekki sinn líka.
Góður matur, eintstakt útsýni og tónlist sem þú elskar. Þess virði að stoppa!