Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið í Fossatúni.

Aðgengi til pantana er í gegnum bókunarkerfið hér á síðunni.

Gistináttaskattur er innifalinn í verðinu svo og aðgengi að Tröllagarðinum., mini-golfi og heitum pottum. Greidd er 1000 kr. trygging fyrir 2 leigu á mini-golfkylfur og kúlur sem er endurgreitt þegar skilað er. Leigutími hámark 2 klst.

Innritun/tékk inn á tjaldsvæði er frá 15 – 21 – Útritun/tékk er frá 10 -15.

Tjaldsvæði A

Yfirborð: Möl með grasi á stæðum – 6 númeruð og rúmgóð stæði, um 16m x 6m fyrir 1 einingu hvert – Æskilegt fyrir: Stærri gerð hjólhýsa (og minni og húsbíla viljirðu rými).  Þriggja pinna rafmagnstengi. Verð á nóttu: Stæði 7000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Tjaldsvæði B

Yfirborð: Möl með grasi á stæðum – 6 númeruð og rúmgóð stæði, um 16m x 6m fyrir 1 einingu hvert – Æskilegt fyrirr: Stærri gerð hjólhýsa (og minni og húsbíla viljirðu rými). Þriggja pinna rafmagnstengi.Verð á nóttu: Stæði 7000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Tjaldsvæði C

Yfirborð: Möl með grasi á stæðum – 8 númeruð stæði, um 11m x 6m fyrir 1 einingu hvert – Æskilegt fyrir: Húsbíla, minni gerð hjólhýsa, tjaldvagna. Tveggja pinna rafmagnstengVerð á nóttu: Stæði 5000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Tjaldsvæði D

Yfirborð: Möl með grasi á stæðum -8 númeruð stæði, um 11m x 6m fyrir 1 einingu hvert – Æskilegt fyrir: Húsbíla, minni gerð hjólhýsa, tjaldvagna. Tveggja pinna rafmagnstengi. Verð á nóttu: Stæði 5000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Tjaldsvæði E

Yfirborð: Gras stæði – 5 ónúmeruð stæði fyrir 1 einingu hvert. Heildarstærð svæðis er: 30m x 21m – Æskilegt fyrir: Tjöld, tjaldvagna, minni gerðir hjólhýsa og húsbíla. Tveggja pinna rafmagnstengi. Verð á nóttu: Stæði 5000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Tjaldsvæði F

Yfirborð: Grasstæði  – 8 ónúmeruð stæði fyrir 1 einingu hvert. Heildarstærð svæðis er: 21m x 46m – Æskilegt fyrir: Tjöld, tjaldvagna, minni gerðir hjólhýsa og húsbíla. Tveggja pinna rafmagnstengi. Verð á nóttu: Stæði 5000 kr. Rafmagn 1500 kr.

Verðskrá miðast við gistinótt á gistieiningu: hjólhýsi, húsbíl, fellihýsi, tjald. Verðið er 5000 kr. og miðað er við að í hverri einingu séu að hámarki 2 fullorðnir og 3 börn eldri en 6 ára eða 3 fullorðnir. Fyrir hvern fullorðinn umfram í gistieiningu er 1000 kr. aukagjald en sé aðeins 1 fullorðinn og 1 barn yfir 6 ára í gistieiningu er 1500 kr. afsláttur frá grunnverði. Passi þessi rammi ekki þá ræðum við málin.

Fossatún er ekki hentugt fyrir stærri hópa, s.s. ættarmótum, sem sækjast t.d. eftir sameiginlegri aðstöðu til borðhalds, og annars. Áherslan er á góða aðstöðu, afþreyingarmöguleika og fallegt náttúrulegt umhverfi. Fjölskylduvænar aðstæður er aðall Fossatúns.

Losun á salernisúrgangi er hinum megin við mönina á norðurenda svæðisins. Sjá kort.

Við mælum með að gestir panti í gegnum netið.

Eldhúsaðstaða er EKKI innifalin í tjaldsvæðisgistingu.

Hundar eru leyfðir og eigendur þeirra ábyrgir fyrir að hafa þá í taumi og að þeir trufli ekki aðra gesti. Rafmagnstenglar eru í öllum hólfum annaðhvort tveggja eða þriggja pinna (sjá kort) Ætlast er til að gestir sýni tillitssemi og frá 24 til 09 er stranglega bannað að vera með hávaða eða valda ónæði. Aldurstakmark til panta og vera í sér gistieiningu er 20 ára.

Veitingastaður: Rock´n´Troll Kaffi er á svæðinu og þar er í boði: morgunverður, kaffiveitingar og kvöldverður. Æskilegt er að panta fyrirfram.

Afbókunarskilmálar m.v. 14 daga. Þ.e. afpanta þarf 14 dögum fyrir komu.

Vetrarverð: fra 1. september til 30. apríl og er 4000 kr. pr. einingu.

Tjaldsvæðið í Fossatúni býður upp á 6 aðskilin svæði/hólf, sem umlukin eru skjólbeltum. Hólfin eru nefnd eftir íslenskum hljómsveitum. Verðlagning miðast við að hagstætt sé fyrir fjölskyldufólk að dvelja við góðar aðstæður og hafa jafnframt aðgengi að einstakri afþreyingu og aðstöðu.

Pantað í gegnum netið.

Þú ferð inn á www.fossatun.is (þessa heimasíðu)

Velur Gisting, niður kemur stika með gistmöguleikum – velur Tjaldsvæði

Upp kemur síða með upplýsingum um tjaldsvæði – góðar og einfaldar upplýsingar. Lesa.

Velja Check in – dag, velja Check out – dag, velja fjölda gesta. Smella á Continue.

Gistimöguleikarnir sem eru í Fossatúni opnast. Velja Tjaldsvæði með því að ýta á Book Now.

Valkostir á tjaldsvæðinu opnast: Velja nafn á stæði.

Smella á Quantity (magn/fjöldi) og velja 1 ef þú ætlar að panta 1 stakt stæði eða 2 ef þú villt tvö stæði o.s.frv. Lítill gluggi opnast fyrir neðan Guests og þú setur inn fjölda gesta. Hámark fyrir hvert stakt stæði er 2 fullorðnir og 3 börn. Blár Book-hnappur birtist þegar búið er að slá inn magn/fjölda.

Smella á Book. Fylla út persónuupplýsingar svo og kortaupplýsingar. Smellir á Confirm. Þar með er pöntun staðfest og þú færð upp síðu með upplýsingum þess sem þú varst að panta.